12 okt. 2007Í kvöld hefst keppni í 1. deild karla með þremur leikjum. Sá fyrsti hefst klukkan 19:30 og er á milli Hauka og Vals. Klukkan 20:00 mætast Þór og FSu í Þorlákshöfn í suðurlandsslag og Breiðablik sækir heim nýliða Reynis í Sandgerði. 1. deildin verður mjög sterk í vetur. Það eru mörg mjög metnaðarfull lið í deildinni sem stefna hátt. Töluvert hefur verið um leikmannaskipti hjá liðunum og því verður spennandi að fylgjast með fyrstu leikjunum. Þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn liðanna voru beðnir um að spá um lokastöðuna í deildinni og samkvæmt spánni mun Breiðablik verða efst í vor. Spáin: 1. Breiðablik 2. Valur 3. KFÍ 4. FSu 5. Haukar 6. Þór Þorl 7. Ármann/Þróttur 8. Höttur 9. Þróttur úr Vogum 10. Reynir úr Sandgerði Einnig hafa spekingarnir á [v+]http://www.karfan.is[v-]karfan.is[slod-] spáð fyrir um lokastöðuna í 1. deild karla ásamt því að fá þjálfara liðanna til að svara nokkrum spurningum.