10 okt. 2007Í dag er haldinn í Osló árlegur fundur Norðurlandaþjóðanna um körfuknattleiksmál. Þarna hittast fulltrúar körfuknattleikssambandanna á Norðurlöndum og ræða ýmis málefni tengd körfuboltanum. Á fundinum verður meðal annars rætt um samskipti og samstarf Norðurlandaþjóðanna en Norðurlandaþjóðirnar hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina. Einnig verður rætt um málefni Norðurlandaþjóðanna gagnvart FIBA og FIBA Europe. Fulltrúi KKÍ á fundinum er Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri sambandsins.