5 okt. 2007Á sunnudaginn kemur verður meistarakeppni KKÍ haldin þar sem Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar karla og kvenna frá fyrra ári mætast. Þetta markar upphaf nýs keppnistímabils í körfunni. Leikir fara fram í DHL höllinni í Vesturbænum og hefst kvennaleikur Hauka og Keflavíkur klukkan 17:00 og karlaleikur KR og ÍR klukkan 19:30. Allt frá árinu 1995 hefur KKÍ haft þennan viðburð sem ágóðaleik fyrir einhver samtök sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda og í ár hefur SÁÁ orðið fyrir valinu. SÁÁ er einmitt að halda upp á 30 ára afmæli sitt um næstu helgi og því mikið að gerast. Allur ágóði sem hlýst af leikjunum rennur óskiptur til SÁÁ Yfirskriftin að þessu sinni er eftirfarandi: SÁÁ-Stuðningur við börn alkóhólista Hér að neðan gefur að líta þau málefni sem hafa verið styrkt frá árinu 1995 með þessum árlegum leikjum Meistara fyrra árs: Styrkþegar meistarakeppni KKÍ 1995 Samtök krabbameinssjúkra barna 1996 Jafningjafræðsla framhaldsskólanna 1997 Neistinn - styrktarfélag hjartveikra barna 1998 FSBU - foreldrafélag sykursjúkra barna 1999 LAUF - landssamtök áhugafólks um flogaveiki 2000 Samtök barna með tourett heilkenni 2001 PKU - Samtök foreldra barna með efnaskiptasjúkdóma 2002 Foreldrafélag geðsjúkra barna og unglinga 2003 Einstök börn 2004 MND-félagið 2005 Foreldrafélag barna með axlaklemmu 2006 Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra