2 okt. 2007Breiðablik mun eins og undanfarin ár standa fyrir utandeild í körfuknattleik. Öllum er heimil þátttaka sem ekki leika í Iceland Express deild karla og kvenna eða í 1. deild karla. Öllum liðum verða tryggðir 5 leikir í deildinni en keppnisfyrirkomulag verður ákveðið þegar ljóst er hversu mikill fjöldi liða tekur þátt. Þátttökugjald er kr. 35.000 pr. lið. Hvert lið fær 5 leiki með dómara og ritaraborði. Hvor hálfleikur er 12 mínútur og klukka ekki stoppuð nema 2 síðustu mínútur leiksins. Innáskiptingar frjálsar og eitt leikhlé í síðari hálfleik. Leikir fara fram í Smáranum og verður leikið á föstudagskvöldum í vetur. Hægt verður að fylgjast með niðurröðun og úrslitum leikja á Breidablik.is. Þátttökutilkynningum þar sem fram kemur nafn liðs, nafn, heimilisfang, gsm sími og netfang forsvarsmanns, skal skila til Péturs Hrafns Sigurðssonar, [p+]petur@getraunir.is[p-]petur@getraunir.is[slod-] fyrir 10. október.