27 sep. 2007Nú er hálfleikur í leik KR og Skallagríms í Powerade bikarkeppninni. KR-ingar eru 9 stigum yfir í hálfleik. Leikurinn hefur verið skemmtilegur hingað til og einkennst af mikilli baráttu beggja liða. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 25-23 fyrir KR. Þeir náðu svo að auka muninn í öðrum leikhluta og leiða í hálfleik 45-36. Leikur Njarðvíkur og Snæfells verður á eftir þessum leik, klukkan 21:00.