26 sep. 2007Evrópukeppni kvennalandsliða fer fram á Ítalíu um þessar mundir. Þarna eru samankomnar margar af sterkustu þjóðum heims og skemmtilegt mót framundan. Fyrsta stigi keppninnar lýkur í dag þegar riðlakeppnin klárast. Þrjú lið komast áfram af fjórum í hverjum riðli og keppni mun halda áfram í tveimur 6 liða milliriðlum. Fjögur efstu liðin munu svo komast áfram úr hvorum milliriðli og keppa í 8 liða úrslitum. Fyrstu leikir dagsins eru hafnir og hægt er að fylgjast með þeim á heimasíðu [v+]http://www.fibaeurope.com/Default.asp?[v-]FIBA Europe[slod-]