23 sep. 2007Í kvöld kláruðust 8-liða úrslit Poweradebikarkeppninnar þegar Njarðvík tók á móti ÍR og KR fékk Hamar í heimsókn. KR sigraði Hamar 94:79 og mætir Skallagrím í undanúrslitum í Laugardalshöll næsta fimmtudagskvöld. Í Njarðvík sigruðu heimamenn ÍR 87:80 og mun Njarðvík mæta Snæfelli í undanúrslitum í Laugardalshöll næsta fimmtudagskvöld.