22 sep. 2007Í dag heldur Poweradebikarinn áfram þegar 8-liða úrslit hefjast með tveim leikjum. Fjögur efstu lið Iceland Express deildar karla frá síðustu leiktíð sátu hjá í fyrstu umferð og fengu sæti beint í 8-liða úrslitum. Þau hefja leik í dag og á morgun. Í dag klukkan 16:00 mætast Grindavík og Skallagrímur en Skallagrímur sló nýliða Stjörnunnar út í fyrstu umferð. Grindavík og Skallagrímur hafa mæst undanfarin ár í mikilvægum leikjum og skemmst er að minnast þegar Grindvíkingar slógu Skallagrím út í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar sl. vor. Það má búast við hörkuleik eins og ávallt þegar þessi lið mætast. Í hinum leik dagsins í 8-liða úrslitum mætast Snæfell og nýliðar í efstu deild, Þór frá Akureyri. Leikurinn fer fram í Stykkishólmi og hefst klukkan 16:00. Þórsarar gerðu góða ferð til Keflavíkur sl. fimmtudagskvöld er þeir lögðu heimamenn með 10 stiga mun og tryggðu sér þar með sæti í 8-liða úrslitum. Verður gaman að fylgjast með þeim í dag er þeir mæta firnasterku liði Snæfells sem eru afar erfiðir heim að sækja. Hinir tveir leikir 8-liða úrslita Poweradebikarsins eru á morgun sunnudag.