21 sep. 2007Í kvöld lýkur fyrstu umferð í Powerade bikarkeppninni. ÍR tekur á móti Fjölni og Hamar fær Tindastól í heimsókn. Fjölnismenn eiga harma að hefna gegn ÍR-ingum í Seljaskóla í kvöld en liðin mættust í Reykjavíkurmótinu á dögunum. Þá sigruðu ÍR-ingar 95-92 þegar Steinar Arason skoraði ævintýralega körfu í lok leiksins. Það má því búast við hörkuleik í kvöld. Leikurinn í Hveragerði ætti ekki síður að verða áhugaverður þar sem ekki er langt síðan Hamar og Tindastóll voru að berjast um síðasta sætið í úrslitakeppninni. Hamar hafði betur í þeirri baráttu og náði 8. sætinu en lið Tindastóls hefur tekið nokkrum breytingum frá síðasta tímabili. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 í kvöld.