20 sep. 2007Í kvöld hófst Poweradebikarinn með tveim leikjum. Keflavík og Þór Akureyri áttust við í Keflavík og Skallagrímur fékk Stjörnuna í heimsókn. Þór Akureyri gerði góða ferð suður en þeir lögðu heimamenn 90:80 eftir að hafa leitt allan leikinn að mestu. Í Borgarnesi þurfti að framlengja til að knýja fram úrslit en það voru heimamenn sem höfðu betur á endasprettinum 87:84. Skallagrímur mætir Grindavík í Grindavík á laugardaginn klukkan 16:00 og á sama tíma mæta Þórsarar Snæfelli í Stykkishólmi.