20 sep. 2007Í kvöld hefst Poweradebikarkeppni karla en þetta er annað árið þar sem keppnin hefst og klárast áður en deildirnar byrja. Í kvöld taka Kelfvíkingar á móti Þór frá Akureyri og Skallagrímur fær Stjörnuna í heimsókn. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 Á morgun föstudag fara svo fram tveir leikir en þá eigast við ÍR og Fjölnir annars vegar og Hamar og Tindastóll hins vegar. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15. Kr, Njarðvík, Grindavík og Snæfell sitja hjá i fyrstu umferð og mæta sigurvegurum úr þessum fjórum viðureignum í 8 liða úrslitum keppninnar á laugardag og sunnudag. [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2008/00002698.htm[v-]Poweradebikarkeppni karla[slod-]