19 sep. 2007Þessa dagana fara fram leikir í umspili hvaða þjóðir færa sig upp í A-deildir Evrópukeppna karla og kvenna. Finnland og Stóra Bretland tryggðu sér réttinn hjá körlum um síðustu helgi og nú er komið að konunum. Sigmundur Már Herbertsson hefur verið útnefndur sem aðaldómari í leik Bosníu og Noregs sem fram fer í Noregi 22.september. Meðdómari Sigmundar er franskur og eftirlitsmaður kemur frá Danmörku.