15 sep. 2007Íslenska kvennalandsliðið mætir Írlandi í dag í Dublin í lokaleik sínum í b-deild Evrópukeppninnar. Bæði lið eiga ekki möguleika á að komast áfram en sigurvegari leiksins tryggir sér þriðja sætið í riðlinum. Íslenska liðið vann fyrri leikinn í Keflavík síðasta haust með 12 stigum, 68-56. Það er annar tveggja sigra í sjö A-landsleikjum kvenna við Írland en hinn og sá eini í Dublin kom fyrir rúmum tíu árum eða 15. maí 1997. Enginn leikmaður íslenska liðsins í dag var með þegar Ísland vann Írland í Dublin fyrir rúmum tíu árum en sjúkraþjálfari liðsins, Björg Hafsteinsson, var hinsvegar í treyju númer 10 í íslenska liðinu sem vann leikinn 72-61. Björg er ein af sex leikmönnum sem hafa spilað flesta landsleiki við Íra. Björg mætti Írum fimm sinnum á sínum landsliðsferli alveg eins og þær Guðbjörg Norðfjörð, Anna María Sveinsdóttir, Linda Stefánsdóttir, Hanna Björg Kjartansdóttir og Birna Valgarðsdóttir. Stigahæsti leikmaður liðsins í þeim leik var Erla Reynisdóttir með 20 stig en leikurinn var einn þriggja vináttulandsleikja í undirbúningi liðsins fyrir Smáþjóðaleikana sem fóru fram á Íslandi 1997. Aðrar sem voru atkvæðamiklar í leiknum voru þær Birna Valgarðsdóttir (13 stig), Anna María Sveinsdóttir (12) og Anna Dís Sveinbjörnsdóttir (11). Þjálfari íslenska liðsins var Sigurður Ingimundarson. Ísland vann heimaleikinn í fyrrahaust með tólf stiga mun, 68-56. Íslenska liðið hafði góð tök á leiknum og var komið með 16 stiga forskot eftir þrjá fyrstu leikhlutana. Helena Sverrisdóttir, sem flaug í leikinn frá Forth Worth í Texas, var þá atkvæðamest í íslenska liðinu með 20 stig, 13 fráköst og 7 stoðsendingar en fyrirliðinn, Signý Hermannsdóttir bætti við 12 stigum, 7 fráköstum, 4 stoðsendingum og 4 vörðum skotum. Sjö af tólf leikmönnum íslenska liðsins voru með í leiknum í fyrra. Landsleikir Íslands við Írland hjá A-liði kvenna: 16. desember 1989 Promotion Cup í Lúxemborg 55-74 tap 14. desember 1993 Promotion Cup á Kýpur 48-66 tap 14. maí 1997 Vináttuleikur í Dublin 69-78 tap 15. maí 1997 Vináttuleikur í Dublin 72-61 sigur 16. maí 1997 Vináttuleikur í Waterford 74-79 tap 5. maí 2001 Æfingamót í Lúxemborg 61-72 tap 23. september 2006 Evrópukeppni, B-deild 68-56 sigur