14 sep. 2007Nú er leikjum dagsins lokið á Evrópumótinu í körfubolta. Litháen og Grikkland unnu sína leiki og komust áfram í fjögurra liða úrslit. Litháen vann Króatíu og Grikkland lagði Slóveníu. Báðir leikirnir voru æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasprettinum. Zoran Planinic, leikmaður Króatíu, brenndi af tveimur vítaskotum þegar 1,02 sekúndur voru eftir af leiknum og Litháar náðu þar með að landa sigri [v+]http://www.eurobasket2007.org/en/cid_BqypGFJPHy-Nw4lwIAq,v3.gameID_5172-46-A-1.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_5172.teamID_.html[v-]74-72[slod-] Litháar eru eina liðið í keppninni sem hefur ekki tapað leik og ættu því að fara fullir sjálfstraust í undanúrslitin. Linaz Kleiza var með 19 stig og tók 9 fráköst í leiknum og Darius Songalia skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Hjá Króatíu var Zoran Planinic atkvæðamestur þrátt fyrir að klikka á vítunum í lokin. Hann skoraði 16 stig, sendi 5 stoðsendingar og stal 7 boltum í leiknum. Viðureign Grikklands og Slóveníu var ekki síður spennandi. Slóvenía var með 14 stiga forystu í byrjun fjórða leikhluta og þegar 2 mínútur voru eftir voru þeir með 8 stiga forystu og sigurinn virtist innan seilingar. Grikkir gáfust þó ekki upp og léku frábærlega í lokin. [v+]http://www.eurobasket2007.org/en/cid_BqypGFJPHy-Nw4lwIAq,v3.teamID_291.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_5172.playerID_28660.html[v-]Theodoras Papalokas[slod-] skoraði 7 stig á lokakaflanum og tryggði Grikkjum eins stigs sigur [v+]http://www.eurobasket2007.org/en/cid_BqypGFJPHy-Nw4lwIAq,v3.gameID_5172-45-A-1.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_5172.teamID_.html[v-]62-63[slod-]. Papaloukas skoraði 17 stig í leiknum og tók 5 fráköst. [v+]http://www.eurobasket2007.org/en/cid_BqypGFJPHy-Nw4lwIAq,v3.teamID_2154.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_5172.playerID_12730.html[v-]Radoslav Nesterovic[slod-] var stigahæstur Slóvena með 16 stig og 11 fráköst. Mikil stemning er á Evrópumótinu sem er einn af stærstu íþróttaviðburðum þessa árs. Aðdáendur fagna á götunum fram eftir nóttu og á leikjunum er gífurlega góð stemning. Í Madrid eru mikill fjöldi fólks, víðs vegar úr heiminum, sem er komið til að fylgjast með keppninni. Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ eru í Madrid að fylgjast með mótinu. Einnig eru í Madrid 15 íslenskir dómarar ásamt tveimur fyrrverandi FIBA dómurum.