12 sep. 2007Helgina 22.-23. september, standa KKÍ og Breiðablik fyrir dómaranámskeiði í Smáranum í Kópavogi. Námskeiðið hefst á laugardagsmorgni og stendur fram eftir degi. Á sunnudeginum verður námskeiðið svo klárað þar sem allir þátttakendur fá tækifæri til að dæma með leiðsögn leiðbeinanda. Nánari dagskrá verður send út í vikunni. Frítt er fyrir alla á námskeiðið, en nauðsynlegt er að áhugasamir skrái sig með tölvupósti á domaranefnd@kkdi.is.