10 sep. 2007Logi Gunnarsson skoraði 19 stig í fyrsta æfingaleiknum með félagi sínu Farho Gijon, sem leikur í LEB 2 deildinni á Spáni. Gijon lék gegn liði Caja Rioja sem einnig leikur í LEB 2 deildinni og unnu leikinn 93-82. Logi lék 27 mínútur í leiknum og var funheitur. Hann var stigahæstur með 19 stig, tók 3 fráköst og sendi 2 stoðsendingar í leiknum. Logi nýtti 5 af 6 þriggja stiga skotum sínum og hitti úr báðum tveggja stiga skotum sínum í leiknum. [v+] http://www.kki.is/tolfraedi_ferill_leikmanns.asp?Felaganumer=144422[v-]Stevie Johnson[slod-] lék með Caja Rioja í leiknum en hann lék á Íslandi með Þór Akureyri og Haukum fyrir nokkrum árum síðan. Þetta er frábær byrjun hjá Loga sem sagði að liðið liti vel nokkuð vel út og væri nokkuð svipað að styrkleika og í fyrra þegar þeir léku í LEB 1 deildinni.