9 sep. 2007Í dag ráðast úrslit á Reykjanesmótinu. Mótið hófst á fimmtudaginn og var leikið í tveimur 4 liða riðlum. Riðlakeppninni lauk í gær og það eru UMFG og Stjarnan sem munu leika til úrslita. Úrslitaleikurinn hefst klukkan 19:15 í kvöld og verður að Ásvöllum í Hafnarfirði. Breiðablik og Njarðvík mætast klukkan 17:30 í leik um þriðja sætið og Haukar og Keflavík leika um 5. sætið klukkan 15:45. Stjarnan hefur leikið vel á undirbúningstímabilinu en þeir urðu í fyrsta sæti á Valsmótinu sem haldið var um síðustu helgi.