2 sep. 2007Í gær hófst skráning liða í Íslandsmót yngri flokka. Skráningin fer fram 1. - 10. september. Eftir 10. september hefst vinna við að taka saman skráningarnar og raða liðunum í riðla. Fyrstu fjölliðamótin verða svo helgina 29. - 30. september. Þá hefst keppni í Stúlknaflokki, 11. flokki drengja og 8. flokki drengja og stúlkna. Samhliða skráningunni í Íslandsmót fer fram skráning í bikarkeppni yngri flokka. Gert er ráð fyrir að bikarkeppnin hefjist í seinni hluta októbermánaðar. Skráningareyðublöð voru send út á félögin í síðustu viku og þurfa þau að berast á skrifstofu KKÍ fyrir 10. september næstkomandi. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á [p+]oddur@kki.is[p-]oddur@kki.is[slod-].