1 sep. 2007Leikur Íslands og Hollands var að hefjast í b-deild Evrópukeppni landsliða. Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV en einnig er hægt að fylgjast með gangi leiksins á heimasíðu [v+]http://www.fibaeurope.com/Default.asp?[v-]FIBA Europe[slod-]. Þetta verður 50. landsleikur Hildar Sigurðardóttur og fékk hún af því tilefni afhent gullúr frá KKÍ fyrir leikinn. Leikurinn er mikilvægur fyrir íslenska liðið því ef sigur vinnst er enn möguleiki á því að sigra riðilinn. Hollenska liðið er sem stendur efst í riðlinum. [v+]http://live.fibaeurope.com/netcasting/default.asp?game_number=5716-A-9µsite_scope=undefined[v-]Tölfræðin á netinu[slod-].