29 ágú. 2007Leikur Íslands og Georgíu er hafinn í Laugardalshöll. Leikurinn hefur verið jafn og skemmtilegur en Georgíumenn eru yfir 33-28 þegar þrjár og hálf mínúta er eftir af öðrum leikhluta. Íslensku strákarnir eru að leika vel gegn hávöxnu liði Georgíumanna en eiga þó erfitt með að skjóta yfir risana.