29 ágú. 2007Leikur Íslands og Georgíu í b-deild Evrópukeppni landsliða var frábær skemmtun. Ísland fór með sigur af hólmi eftir að Jakob Örn Sigurðarson skoraði þriggja stiga körfu á lokasekúndunum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Hvorugt liðið náði að slíta sig frá hinu. Georgíumenn höfðu þó frumkvæðið meirihluta leiksins en íslenska liðið slakaði aldrei á og náði alltaf að koma til baka. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 18-23 fyrir Georgíu. Annar leikhluti einkenndist af mikilli baráttu beggja liða. Íslenska liðið lék góða vörn á Zaza Pachulia, miðherja Georgíumanna. Íslensku bakverðirnir voru duglegir að koma í hjálparvörn þegar Pachulia fékk boltann og neyða hann til þess að senda á samherja sína. Georgíumenn nýttu þó ágætlega færin sem þeir fengu út úr þessu og voru yfir í hálfleik 36-38. Logi Gunnarsson lék frábærlega í fyrri hálfleik. Hann skoraði 12 fyrstu stig íslenska landsliðsins og 16 af 17 stigum sínum í leiknum fyrir hlé. Í síðari hálfleik fóru leikmenn íslenska liðsins að hitta betur úr skotunum fyrir utan. Magnús Gunnarsson kom ínná og skoraði 2 þriggja stiga körfur, Brenton Birmingham, Páll Axel Vilbergsson og Jakob Sigurðarson skoruðu einnig mikilvægar körfur utan af velli og héldu þar með muninum niðri. Fjórði leikhluti var hnífjafn og spennan í Höllinni var orðin gífurleg. Íslendingar komust yfir þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Brenton Birmingham skoraði og fékk víti að auki og staðan var 72-68 fyrir Ísland. Georgíumennirnir Tyrone Ellis og Zaza Pachulia fengu víti í næstu sóknum og komu Georgíu tveimur stigum yfir. Brenton Birmingham jafnaði metin aftur fyrir Ísland en Vladimer Boisa skoraði úr sniðskoti og staðan var því 74-72. Íslendingum mistókst að skora í næstu sókn og urðu því að brjóta á Zaza Pachulia. Hann klikkaði á fyrra vítinu en hitti úr seinna. Íslendingar fóru því í sókn þremur stigum undir og Georgíumenn brutu á Loga Gunnarsyni þegar 5 sekúndur voru eftir af leiknum. Logi fékk tvö vítaskot og hitti úr því fyrra. Hann klikkaði síðan á seinna skotinu og Fannar Ólafsson náði að slá boltann frá körfunni til Loga sem skutlaði sér á boltann og kom honum til Jakobs. Jakob náði að skjóta þriggja stiga skoti áður en Georgíumenn gátu varist. Boltinn fór í spjaldið og ofan í körfuna þegar tíminn rann út og gífurleg fagnaðarlæti brutust út Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig og Jakob skoraði 16. Brenton Birmingham skoraði 13 stig og tók 10 fráköst og Páll Axel Vilbergsson skoraði 9 stig og tók 15 fráköst. Tyrone Ellis var stigahæstur hjá Georgíu með 17 stig. Íslenska liðið lék frábærlega í leiknum. Leikmenn liðsins léku góða vörn á Pachulia og náðu að halda honum frá körfunni. Liðið steig ótrúlega vel út og unnu frákastabaráttuna 45-39 þrátt fyrir að vera að leika gegn mun hávaxnara liði. [v+]http://www.eurobasket2007.org/en/cid_BqypGFJPHy-Nw4lwIAq,v3.pageID_MIo9t,r8GfgCzft4jY3M,2.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_4950.teamID_.gameID_4950-C-16-8.html[v-]Tölfræði leiksins[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/coid_gusZUD6mIJAFLw4ToiBpY2.container_frontpage.articleMode_on.html[v-]Umfjöllun á heimasíðu FIBA Europe[slod-] [v+]http://www.flickr.com/photos/kki_myndir/[v-]Myndir úr leiknum[slod-]