14 ágú. 2007A-Landslið kvenna mun leika 3 leiki í Evrópukeppni landsliða í september. Þetta er seinni hluti keppninnar sem liðið tók þátt í síðastliðið haust. Guðjón Skúlason, þjálfari liðsins, hefur valið 14 leikmenn til þess að taka þátt í verkefninu. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Hollandi 1. september næskomandi. Leikurinn mun fara fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst hann klukkan 16:00. Hollenska liðið er í efsta sæti riðilsins en íslenska liðið var nálægt því að sigra þegar liðin mættust í Hollandi. Þetta verður því væntanlega hörkuleikur. 8. september mun íslenska liðið mæta því norska á útivelli og lokaleikur liðsins verður svo 15. september í Írlandi. Landsliðshópurinn er þessa dagana á fullu við æfingar. Liðið mun æfa í Kennaraháskólanum í kvöld en færa sig svo á Suðurnesin og æfa í Njarðvík, Vogum og Keflavík áður en komið verður aftur á höfuðborgarsvæðið. Leikmannahópurinn: Helena Sverrisdóttir Staða: Leikstjórnandi Lið: Haukar/TCU Hæð: 184 cm. Landsleikir: 18 Kristrún Sigurjónsdóttir Staða: Framherji Lið: Haukar Hæð: 170 cm. Landsleikir: 5 Sigrún S. Ámundadóttir Staða: Framherji Lið: Haukar Hæð: 174 cm. Landsleikir: 0 Unnur Tara Jónsdóttir Staða: Framherji Lið: Haukar Hæð: 183 cm. Landsleikir: 0 Hildur Sigurðardóttir Staða: Leikstjórnandi Lið: KR Hæð: 170 cm. Landsleikir: 47 Ingibjörg Jakobsdóttir Staða: Bakvörður Lið: UMFG Hæð: 175 cm. Landsleikir: 0 Petrúnella Skúladóttir Staða: Framherji Lið: UMFG Hæð: 175 cm. Landsleikir: 3 Bryndís Guðmundsdóttir Staða: Framherji Lið: Keflavík Hæð: 180 cm. Landsleikir: 10 Ingibjörg E. Vilbergsdóttir Staða: Bakvörður Lið: Keflavík Hæð: 174 cm. Landsleikir: 9 María B. Erlingsdóttir Staða: Miðherji Lið: Keflavík/UTPA Hæð: 184 cm. Landsleikir: 16 Svava Ó. Stefánsdóttir Staða: Bakvörður Lið: Keflavík Hæð: 177 cm. Landsleikir: 13 Margrét Kara Sturludóttir Staða: Framherji Lið: Keflavík Hæð: 175 cm. Landsleikir: 2 Pálína M. Gunnlaugsdóttir Staða: Bakvörður Lið: Keflavík Hæð: 173 cm. Landsleikir: 3 Signý Hermannsdóttir Staða: Miðherji Lið: ÍS Hæð: 183 cm. Landsleikir: 41