9 ágú. 2007Úrtaksæfingabúðir hjá 90 og 93 landsliðinu fara fram í íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn næstkomandi helgi, laugardaginn 11. ágúst og sunnudaginn 12. ágúst og eru rúmlega 40 strákar boðaðir í ´93 árganginn og um 25 í ´90 árganginn. Hvort lið fyrir sig æfir tvisvar sinnum á dag, en ´90 liðið mun einnig æfa næstu helgi 18.-19. ágúst og ´93 liðið mun svo æfa aftur í september. ´90 árgangurinn er að hefja undirbúning fyrir Norðurlandamót sem haldið verður í lok apríl og byrjun maí, en ´93 hópurinn er að koma saman í fyrsta skipti eftir Elítuæfingarnar síðustu þrjú sumur og mun liðið taka þátt á sínu fyrsta móti vorið 2009. Laugardagurinn 11. ágúst U-93 10:00-12:00 U-90 12:00-14:00 U-93 14:30-16:00 U-90 16:00-17:30 Sunnudagurinn 12. ágúst U-93 10:00-12:00 U-90 12:00-14:00 U-93 14:30-16:00 U-90 16:00-17:30 Þjálfari beggja liða er Ingi Þór Steinþórsson