
8 ágú. 2007Körfubolti án landamæra hófst í París á mánudag en við Íslendingar eigum einn fulltrúa þar. Þetta er í sjöunda skipti sem þessar búðir eru haldnar og vekja gjarnan mikla athygli. Ægir Þór Steinarsson leikmaður með 16 ára landsliðinu er þátttakandi í búðunum. Ægir var í 16 ára landsliðinu sem varð Norðurlandameistari sl. vor og var hann einnig valinn besti leikmaður mótsins. Margar NBA stjörnur taka þátt í þessum búðum ár hvert og á meðal þeirra sem taka þátt núna eru heimamennirnir, Tony Parker leikmaður San Antonio Spurs og Boris Diaw leikmaður Phoenix Suns. Hægt er að lesa meira um þessar búðir [v+]http://www.nba.com/global/bwb_europe_2007.html[v-]hér[slod-] [v+]http://www.nba.com/global/europe/bwb_2007.html[v-]Dagbók búðanna[slod-]


