24 júl. 2007Spánverjar tryggðu sér um helgina Evrópumeistaratitil U-20 ára kvenna þegar þær unnu lið Serbíu í úrslitaleik 75-60. Úrslitaleikurinn var mjög kaflaskiptur en Serbía náði 21-5 forystu eftir 8 mínútur en spænska liðið náði að vinna muninn upp að mestu fyrir hálfleik. Þær komu svo með mjög góðan kafla í þriðja leikhluta sem gerði útslagið í leiknum. Silvia Dominguez lék frábærlega fyrir Spán. Hún skoraði 21 stig, tók 8 fráköst og sendi 3 stoðsendingar í úrslitaleiknum. Miljana Musovic var stigahæst hjá Serbíu með 16 stig. Spænsku stúlkurnar tileinkuðu sigurinn þjálfara sínum Jordi Fernandez, sem gat ekki verið með þeim í mótinu vegna augnaðgerðar sem hann þurfti að fara í nokkrum dögum áður en keppni hófst. Silvia Dominguez var valin besti leikmaður keppninnar. Úrvalslið mótsins var skipað eftirfarandi leikmönnum: Silvia Dominguez (Spánn) Bahar Caglar (Tyrkland) Endene Miyem (Frakkland) Maria Pina (Spánn) Miljana Musovic (Serbía) Í leik um bronsið sigruðu Frakkar lið Tyrkja 65-63.