10 júl. 2007Lið Bandaríkjanna sigraði lið Ástralíu í úrslitaleik heimsmeistaramóts U-21 kvenna sem fór fram í Moskvu á sunnudaginn. Lokatölur leiksins urðu [v+] http://www.russia2007.fiba.com/pages/eng/fe/07/fiba/u21wom/scheResu/p/eventid/3957/gamename/A/groupname/46/langlc/en/roundid/5635/fe_scheStat_boxScor.html[v-]96-73[slod-] fyrir Bandaríkin. Þær byrjuðu leikinn mjög vel og virtust ætla að vinna auðveldan sigur í leiknum. Staðan var 75-56 eftir þriðja leikhluta eftir að Dewanna Bonner skoraði úr sniðskoti. Lið Ástralíu, sem að tapaði fyrir Bandaríkjunum með aðeins tveimur stigum í riðlakeppninni, náði þó að byrja fjórða leikhlutann af miklum krafti. Þær skoruðu 11 stig í röð og minnkuðu muninn í 8 stig þegar rúmlega sex mínútur voru eftir af leiknum. Bandaríska liðið náði að herða vörnina eftir þetta og það dugði þeim til sigurs í leiknum. [v+] http://www.russia2007.fiba.com/pages/eng/fe/07/fiba/u21wom/teamPlay/play/p/eventid/3957/langlc/en/playernumber/52888/roundid/5635/fe_teamPlay_playStat.html[v-]Crystal Langhorne[slod-] átti frábæran leik fyrir Bandaríkin en hún skoraði 23 stig og tók 14 fráköst. Stigaskorið dreifðist vel hjá Bandaríska liðinu en þrjár aðrar stúlkur skoruðu 14 stig. [v+] http://www.russia2007.fiba.com/pages/eng/fe/07/fiba/u21wom/teamPlay/play/p/eventid/3957/langlc/en/playernumber/51571/roundid/5635/fe_teamPlay_playStat.html[v-]Jenna O´Hea[slod-] var best af Áströlunum með 23 stig og 8 fráköst. Frakkar tryggðu sér bronsverðlaunin þegar þær unnu Rússa [v+] http://www.russia2007.fiba.com/pages/eng/fe/07/fiba/u21wom/scheResu/p/eventid/3957/gamename/A/groupname/45/langlc/en/roundid/5635/fe_scheStat_boxScor.html[v-]67-61[slod-].