23 jún. 2007Í dag hefst vinna við að rífa dúkinn af DHL-Höll KR-inga. Skipta á um gólfefni í húsinu og munu KR-ingar fá parket fyrir næsta tímabil. Parketgólf eru mun hentugri til körfuknattleiksiðkunar en önnur gólfefni. Meiðslatíðni á parketi er mun lægri en á dúk. Á ársþingi KKÍ, sem haldið var á Flúðum í byrjun maí, var samþykkt að allir leikir í efstu deildum karla og kvenna yrðu að vera leiknir á parketgólfi frá og með keppnistímabilinu 2010-2011. KR-ingar eru að sjálfsögðu hæstánægðir með að fá loksins parket í DHL-Höllina en einnig stendur til að bæta við áhorfendapöllum í húsinu svo að miklar framkvæmdir eru í vændum í vesturbænum. Á [v+]http://www.kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=284312[v-]heimsíðu KR[slod-] er sagt frá þessum framkvæmdum. Einnig stendur til að skipta út gólfinu í Dalhúsum, heimavelli Fjölnismanna í Grafarvogi. Þar á að koma parket í staðinn fyrir dúkinn sem Fjölnir hefur leikið á síðustu ár. Liðunum fjölgar því sem geta boðið uppá toppaðstöðu fyrir körfuknattleiksiðkendur. Vonandi munu fleiri bætast í hópinn fljótlega.