20 jún. 2007Í kvöld kemur í ljós hverjir verða grískir meistarar þegar [v+] http://www.paobc.gr/en/index.asp [v-]Panathinaikos[slod-] og [v+] http://en.olympiakos.gr/sports.aspx?pageType=basketball [v-]Olympiakos[slod-] mætast í 5. leik úrslitaeinvígisins í Grikklandi. Leikir liðanna hafa verið æsispennandi og hafa allir unnist á heimavelli liðanna. Það eru Panathinaikos sem að eiga heimavallarréttinn og verður því oddaleikurinn leikinn á heimavelli þeirra í Aþenu. Flestir telja Panathinaikos sigurstranglegri en þeir sigruðu Evrópudeildina í vor og hafa unnið langflesta titla í sögu Grikklands. Olympiakos eru þó vongóðir því að þeir hafa leikið vel í einvíginu. Þeir töpuðu þriðja leiknum með einu stigi [v+] http://www.paobc.gr/en/match.asp?match_id=540&year_competition_id=39[v-]86-85[slod-] eftir framlengingu á útivelli í OAKA höllinni í Aþenu. Olympiakos sigraði svo síðasta leik á heimavelli sínum með 10 stiga mun. Pini Gershon, þjálfari Olympiakos, sagði í viðtali eftir fjórða leikinn að hann væri vongóður um sigur í kvöld. "Við erum eina liðið sem hefur unnið Panathinaikos þrisvar á þessu ári og ég er ánægður með að við séum að fara að leika á heimavelli þeirra. Auðvitað eru þeir ennþá taldir sigurstranglegri en við höfum sigrað þá þrisvar og getum gert það einu sinni enn." Það stefnir því í sannkallaðan stórleik í kvöld þegar þessi tvö stórveldi mætast. Það er gífurlega mikill körfuboltaáhugi í Grikklandi og það voru 17.000 manns sem mættu og fylgdust með síðasta leik í Aþenu.