19 jún. 2007[v+]http://www.fiba.com/[v-]FIBA[slod-] útnefndi í gær 20 einstaklinga í frægðarhöll sína. Þetta eru fyrstu meðlimir frægðarhallar FIBA en hún var stofnuð í mars á þessu ári. Alþjóðlega körfuknattleikssambandið, FIBA, var stofnað 18. júní árið 1932 og varð því 75 ára í gær. Af því tilefni var ákveðið að tilkynna hverjir hefðu hlotið þann heiður að verða valdir í frægðarhöllina. Á listanum eru leikmenn, þjálfarar, tæknilegir starfsmenn og þeir sem hafa lagt mikið til körfuboltans. Sérstök nefnd var búin til að sjá um að velja úr þeim sem tilnefndir voru í ár. 12. september næstkomandi verður, í tengslum við Evrópukeppni landsliða, haldin athöfn þar sem að frægðarhallarmeðlimirnir verða vígðir inn. Athöfnin verður í frægðarhöllinni sem að er í borginni Alcobendas á Spáni. Frægðarhöll FIBA hefur sett á heimasíðu sína, [v+]http://www.halloffame.fiba.com/[v-]www.halloffame.fiba.com[slod-], lista yfir alla þá sem valdir voru þetta árið ásamt upplýsingum um hvern og einn. [v+]http://www.halloffame.fiba.com/pages/eng/hof/indu/play/2007/list.asp[v-]Leikmenn[slod-] [v+]http://www.halloffame.fiba.com/pages/eng/hof/indu/coac/2007/list.asp[v-]Þjálfarar[slod-] [v+]http://www.halloffame.fiba.com/pages/eng/hof/indu/offi/2007/list.asp[v-]Dómarar[slod-] [v+]http://www.halloffame.fiba.com/pages/eng/hof/indu/contr/2007/list.asp[v-]Aðrir[slod-]