15 jún. 2007San Antonio Spurs urðu í nótt [v+]http://www.nba.com/finals2007/index.html [v-]NBA[slod-] meistarar þegar þeir sigruðu Cleveland Cavaliers [v+]http://scores.espn.go.com/nba/boxscore?gameId=270614005 [v-]83-82[slod-] í fjórða leik liðanna. San Antonio vann því einvígið 4-0. Tony Parker var valinn leikmaður úrslitanna en hann skoraði tæplega 25 stig og var með 57% skotnýtingu í úrslitunum. Þetta er fjórði NBA titillinn sem að San Antonio vinnur síðan árið 1999. Þeir unnu 58 leiki í deildarkeppninni, lögðu svo Denver, Phoenix og Utah á leiðinni í úrslitin þar sem að þeir fóru létt með Cleveland. San Antonio var með frumkvæðið í leiknum í kvöld fyrir utan stuttan kafla í fjórða leikhluta þegar Cleveland náði 12-0 spretti. San Antonio náði þó að komast aftur yfir með frábærum körfum frá Manu Ginobili. Þeir náðu síðan nokkrum mikilvægum sóknarfráköstum og nýttu vítaskotin sín vel í lok leiksins. Manu Ginobili var stigahæstur í kvöld með 27 stig, Tony Parker skoraði 24 stig og tók 7 fráköst og Tim Duncan skoraði 12 stig og tók 15 fráköst.