15 jún. 2007Í gærkvöldi var haldið dómaraþing [v+]http://kkdi.is/[v-]KKDÍ[slod-] á veitingastaðnum Horninu. Á fundinn voru mættir 14 félagsmenn KKDÍ auk þess sem Hannes S. Jónsson formaður KKÍ sat fundinn sem gestur KKDÍ. Fráfarandi stjórn gaf skýrslu fyrir liðið starfsár og reikningar voru lagðir fram. Helgi Bragason gjaldkeri KKDÍ til margra ára gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjónarsetu í félaginu. Í stjórn KKDÍ voru kosnir: Kristinn Óskarsson til eins árs, Eggert Þór Aðalsteinsson til tveggja ára Varamenn í stjórn til eins árs voru kosnir: Konráð Brynjarsson Davíð Hreiðarson Lárus Ingi Magnússon á eftir eitt ár af sinni stjórnarsetu í félaginu.