13 jún. 2007[v+]http://www.eurobasket.com/team.asp?Cntry=ESP&Team=86 [v-]Real Madrid[slod-] og [v+]http://www.eurobasket.com/team.asp?Cntry=ESP&Team=100 [v-]Barcelona[slod-] komust í gærkvöldi í úrslit spænsku [v+]http://www.acb.com/ [v-]ACB deildarinnar[slod-] í körfubolta. Bæði lið þurftu að leika oddaleiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitunum. Barcelona sigraði deildarmeistara Tau Ceramica [v+]http://jornadavirtual.acb.com/htm/resumen/r335.htm[v-]95-79[slod-] og Real Madrid sigraði DKV Joventud [v+]http://jornadavirtual.acb.com/htm/resumen/r336.htm[v-]65-61[slod-] í spennandi leik. Juan Carlos Navarro átti góðan leik fyrir Barcelona gegn Tau Ceramica. Þessi snjalli bakvörður skoraði 11 stig í þriðja leikhlutanum þegar Barcelona náði góðri forystu sem að þeir gáfu ekki eftir það sem eftir var af leiknum. Navarro skoraði alls 23 stig í leiknum og Gianluca Basile skoraði 24 stig fyrir Barcelona. Hjá Tau Ceramica var Serkan Erdokan stigahæstur með 19 stig. Viðureign Real Madrid og DKV Joventud var gífurlega spennandi. Heimamenn í Real Madrid nýttu vel 14.000 stuðningsmenn, sem að fylltu íþróttahöllina í Madrid, og náðu að komast yfir 16-8 í byrjun leiks. Joventud náði þó að komast til baka og leikurinn var jafn fram á lokamínútuna. Real Madrid náði að komast yfir í lokin og leikmenn liðsins hittu svo úr mikilvægum vítaskotum í lokin og tryggðu þar með sigurinn. Louis Bullock skoraði 16 stig í leiknum og Raul Lopes var með 13 fyrir Real Madrid. Hjá DKV Joventud var Rudy Fernandes stigahæstur með 15 stig. Það er því í vændum mjög áhugavert úrslitaeinvígi á milli þessarra miklu stórvelda á Spáni.