9 jún. 2007Ísland tryggði sér í dag gullverðlaunin í körfubolta á Smáþjóðaleikunum sem haldnir eru í Mónakó. Íslenska liðið lék vel á leikunum og sigraði alla 5 leiki sína. Í leiknum í dag var liðið að ná undirtökunum þegar Kýpverjar misstu stjórn á skapi sínu og slagsmál brutust út. Þá var Ísland 4 stigum undir en átti að fá fjögur vítaskot og boltann aftur. Leikurinn var þó flautaður af þegar ólætin skullu á og Íslandi dæmdur 2-0 sigur. Í heildina var þetta mjög góð ferð fyrir landsliðið, góð stemning var í hópnum allan tímann. Leikmenn liðsins náðu vel saman á vellinum og nýliðarnir í hópnum fengu töluvert að spreyta sig á leikunum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1993 sem að íslenska landsliðið kemur heim með gull af Smáþjóðaleikum. Kýpur hefur verið sigursælt síðustu árin og hefur silfrið því fallið okkur í skaut síðustu ár. Það er því mjög ánægjulegt að hafa náð gullinu eftir langa bið. Íslenska liðið hélt út á flugvöll fljótlega eftir verðlaunaafhendinguna og eru væntanlegir til Keflavíkur í nótt.