8 jún. 2007Ísland sigraði í dag San Marinó á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Íslenska liðið er því búið að sigra alla fjóra leiki sína á mótinu og mætir Kýpur í úrslitaleik á morgun. Þetta var erfiðasti leikur liðsins til þessa á mótinu en liðsmenn San Marinó léku af miklum krafti í byrjun og voru yfir í hálfleik 48-36. Íslenska liðið kom þó mikið betur stemmt í seinni hálfleikinn og náði að vinna muninn upp í þriðja leikhluta. Skytturnar okkar fóru að hitta betur úr þriggja stiga skotum sínum og meiri barátta var í liðinu. Í fjórða leikhluta seig Ísland svo fram úr og náði að knýja fram góðan sigur 92-81. Stigaskor íslendinganna í leiknum: Páll Axel Vilbergsson 22 Logi Gunnarsson 21 Brenton Birmingham 19 Friðrik Stefánsson 15 Magnús Þór Gunnarsson 10 Helgi Már Magnússon 5 Á morgun klukkan 13:00 mætir Ísland svo liði Kýpur. Kýpur hefur farið með sigur af hólmi síðustu árin en strákarnir eru staðráðnir í að sigra þá og koma heim með gullið í ár.