7 jún. 2007Íslenska karlalandsliðið hélt áfram sigurför sinni á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Gestgjafarnir í Mónakó voru fórnarlömb Íslendinga í dag, lokatölur leiksins [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats/12/M9EN.pdf[v-]86-65[slod-]. Leikurinn í kvöld þróaðist eins og aðrir leikir Íslands á mótinu hingað til, nema ef vera kynni fyrstu mínútur leiksins. Eftir jafnræði fyrstu mínúturnar, þar sem Mónakó var með forystuna 8-10, tóku Íslendingar við sér, skoruðu 21 stig í röð og breyttu stöðunni í 29-10. Heimamenn náðu að minnka muninn fyrir lok fyrsta leikhluta í 29-17, en komust aldrei nær. Eins og áður sagði voru lokatölur 86-65, en sigurinn í kvöld þýðir að leikur Íslands og Kýpur á laugardag er þá úrslitaleikur mótsins. Sigurður Ingimundarson þjálfari Íslands dreifði spilatímanum mjög vel í kvöld, sem og í hinum leikjunum. [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats.php?iSport=12&lang=us&link=indexEN.html[v-]Staðan í riðlinum[slod-] Ísland-Mónakó 86-65 (29-17, 45-31, 65-52) Brenton Birmingham 19 stig (2/2 í þriggja, 5/6 í tveggja, 3 stolnir) Páll Axel Vilbergsson 17 stig (5/8 í þriggja, 5 fráköst) Hreggviður Magnússon 12 stig Helgi Már Magnússon 9 stig (4 fráköst) Logi Gunnarsson 9 stig Brynjar Björnsson 8 stig Hörður Axel Vilhjálmsson 5 stig (6 stolnir) Þorleifur Ólafsson 3 stig Friðrik E. Stefánsson 2 stig (9 fráköst) Jóhann Árni Ólafsson 2 stig Kristinn Jónasson (5 fráköst) og Magnús Gunnarsson (4 fráköst) náðu ekki að skora. Tölfræði hinna leikjanna er nú komin á netið. [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats/12/M1EN.pdf[v-]Ísland-Andorra[slod-] [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats/12/M5EN.pdf[v-]Ísland-Lúxemborg[slod-]