7 jún. 2007Ísland mætir heimamönnum í Mónakó kl. 18:30 í kvöld. Íslenska landsliðið hefur byrjað vel á Smáþjóðaleikunum og unnið báða leiki sína með 59 stigum alls. Ísland og Mónakó hafa mæst þrisvar sinnum, öll skiptin á Smáþjóðaleikum. Fyrst mættust liðin einmitt á Smáþjóðaleikunum í Mónakó 1987, en þá höfðu heimamenn betur, 75-80. Ísland vann svo næstu tvær viðureignirnar með 10 stigum og nú síðast á Smáþjóðaleikunum í San Marínó með 37 stigum. Það er þó ljóst að sagan er ekki hliðholl Íslandi og er það því undir strákunum komið að halda áfram á sömu braut og hirða sigur af heimamönnum. Mónakó hefur ekki farið vel af stað á heimavelli. Á fyrsta keppnisdegi mótsins töpuðu þeir fyrir sterku liði Kýpur og í gærkvöldi töpuðu þeir gegn San Marínó. Það má þó ekki vanmeta Mónakó á heimavelli þeirra. Vinni Ísland sigur í kvöld verður leikurinn gegn Kýpur á laugardag hreinn úrslitaleikur, það er því að miklu að keppa.