6 jún. 2007[v+]http://www.virtusroma.it/index.php[v-]Lottomatica Roma[slod-], lið Jóns Arnórs Stefánssonar tapaði fyrir [v+]http://www.menssanabasket.it/[v-]Montepaschi Siena[slod-] eftir þríframlengdan leik [v+]http://195.56.77.208/game/?id=62941[v-]114-108[slod-]. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn 84-84 og þurfti því að framlengja. Jón Arnór, fékk sína 5 villu í fyrstu framlengingunni og þurfti því að yfirgefa völlinn. Hann lék vel í leiknum og skoraði 6 stig á 16 mínútum. Dejan Bodiroga átti góðan kafla fyrir Roma þegar hann skoraði 8 stig á mjög skömmum tíma og tryggði þar með aðra framlengingu. Leikurinn var hnífjafn í henni líka og því þurfti að framlengja í þriðja sinn. Í þriðju framlengingunni voru leikmenn liðanna farnir að týnast út af með 5 villur en Montepaschi Siena náði að knýja fram sigur að lokum. Þeir eru því með 2-1 forystu í einvíginu eftir þennan magnaða leik. Næsti leikur verður á fimmtudagskvöldið á heimavelli Roma. Hægt er að lesa nánar um leikinn á [v+]http://kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=283277[v-]heimasíðu KR[slod-]