
6 jún. 2007Í dag klukkan 16:00 mun íslenska landsliðið leika annan leik sinn á Smáþjóðaleikunum í Mónakó þegar þeir mæta Lúxemburg. Bæði liðin sigruðu leiki sína á leikunum í gær. Ísland vann Andorra 94-65 og Lúxemburg lagði San Marino 81-70. Larrie Smith, leikmaður Lúxemburg átti stórleik í gær gegn San Marino. Hann skoraði 41 stig og tók 11 fráköst í leiknum. Það er því ljóst að íslensku leikmennirnir verða að leika góða vörn gegn þessum tæplega tveggja metra háa framherja. Liðin mættust í Keflavík í september 2006. Þá sigraði Ísland frekar örugglega [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_f43ulKJBGLcVnbH-aqLVu2.pageID_uj4oJSTUJz2zlcBzeU1On0.compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2007.roundID_4950.teamID_300.gameID_4950-C-8-4.html[v-]98-76[slod-]. Liðin munu svo mætast aftur 1. september næstkomandi í Lúxemburg þegar seinni umferð Evrópukeppninnar verður leikin. [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats.php?iSport=12&lang=us&link=round1EN.html[v-]Úrslit gærdagsins á Smáþjóðaleikunum.[slod-] [v+]http://www.monaco2007.mc/resultats.php?iSport=12&lang=us&link=indexEN.html[v-]Staðan eftir fyrstu umferð Smáþjóðaleikanna[slod-]


