5 jún. 2007Íslenska karlalandsliðið í körfubolta sigraði lið Andorra í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Strákarnir fóru hægt af stað en leiddu þó í hálfleik 47-42. Síðari hálfleikurinn var svo mun betri hjá íslenska liðinu og lokatölur leiksins urðu 94-65 fyrir Ísland. Sigurður Ingimundarson, þjálfari liðsins, sagði eftir leikinn að liðið hefði átt við ákveðna byrjunarörðugleika að stríða í fyrri hálfleik. Þetta var svo rætt í hálfleik og strákarnir komu mun ákveðnari inn í seinni hálfleikinn. Sigurður var ánægður með leik liðsins í síðari hálfleiknum og þá sérstaklega varnarleikinn. Hann sagði að það væri eðlilegt að liðið hefði þurft að stilla saman strengi í fyrri hálfleiknum. Sigurður var sérstaklega ánægður með nýliðana í landsliðshópnum, þá Brynjar Þór Björnsson, Jóhann Árna Ólafsson, Hörð Axel Vilhjálmsson og Þorleif Ólafsson en þeir nýttu mínúturnar sínar mjög vel í dag. Sigurður sagði að nú þegar fyrsti leikurinn væri búinn hæfist undirbúningur fyrir leikinn á morgun gegn Lúxemburg. Það er ljóst að sá leikur verður erfiðari og að við verðum að mæta einbeittari í þann leik. Íslenska liðið er vel stemmt fyrir leikinn á morgun en mínúturnar skiptust vel á milli leikmanna í dag. Ísland lék gegn Lúxemburg seinasta haust og sigraði þá nokkuð örugglega 98-76. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og kona hans, Dorrit Mousaieff fylgdust með leiknum í dag. Þau hafa verið dugleg að fylgjast með hinum ýmsu atburðum á Smáþjóðaleikunum. Stigaskor íslenska liðsins: Brenton Birmingham 17 Páll Axel Vilbergsson 15 Helgi Már Magnússon 15 stoðsendingar Logi Gunnarsson 12 Friðrik Stefánsson 10 Hreggviður Magnússon 7 Brynjar Þór Björnsson 6 Kristinn Jónasson 5 Þorleifur Ólafsson 4 Magnús Þór Gunnarsson 3