2 jún. 2007Á mánudaginn verða 12.Smáþjóðaleikar Evrópu settir í Mónakó og heldur íslenski hópurinn utan á sunnudagsmorguninn. Auk körfubolta er keppt í eftirtöldum íþróttagreinum; blaki, borðtennis, frjálsumíþróttum, fimleikum, júdó, siglingum, sundi, skotíþróttum, strandblaki og tennis. Því miður þá verður ekki keppt í körfukbolta kvenna á þessum leikum en reynt var að fá mótshaldara til að breyta ákvöðrun sinni en ekki tóks það og er það miður að á ári kvenna í körfuknttleik í Evrópu sé ekki keppni hjá stelpunum á þessum leikum. Eins og áður hefur komið fram verða leikarnir settir á mánudag en þeim lýkur laugardaginn 9.júní. Körfuboltakeppnin hefst á þriðjudaginn með leik Íslands og Andorra, leikurinn hefst kl. 13:30 að íslenskum tíma en leikjaplanið er svona: Þriðjudagur 5. júní kl. 13:30 Ísland-Andorra Miðvikudagur 6. júní kl. 16:00Ísland-Lúxemburg Fimmtudagur 7. júní kl. 18:30 Ísland-Mónakó Föstudagur 8. júní kl. 16:00 Ísland-San Marinó Laugardagur 9. júní kl. 13:00 Ísland-Kýpur Körfuboltahópurinn sem fer til Mónakó er þannig skipaður: Magnús Þór Gunnarsson,Keflavík fyrirliði Helgi Már Magnússon, Boncourt varafyrirliði Logi Gunnarsson, Gijon Friðrik Erlendur Stefánsson, Njarðvík Hreggviður Steinar Magnússon, ÍR Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Kristinn Jónasson, Fjölni Brynjar Þór Björnsson, KR Brenton Birmingham, Njarðvík Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík Þorleifur Ólafsson, Grindavík Hörður Axel Vilhjálmsson,. Fjölni Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari Friðrik Ingi Rúnarsson aðstoðarlandsliðsþjálfari og framkvæmdastjóri KKÍ Vala May Mason sjúkraþjálfari Sigmundur Már Herbertsson FIBA-dómari Hannes S.Jónsson formaður KKÍ Gísli Georgsson í stjórn KKÍ