30 maí 2007Nú styttist í körfuboltabúðir Keith Vassell sem verða í íþróttahúsinu við Austurberg vikurnar 11-15 og 18-22 júní. Keith hélt tvö körfuboltanámskeið í samvinnu við ÍR sl vetur og voru þau vel skipulögð með topp leiðbeinendum. Vinsældir þeirra námskeiða er sprettan af þessum körfuboltabúðum í Austurbergi. Námskeiðin eru tvískipt, annars vegar fyrir 8-11 ára krakka og hins vegar fyrir 12-15 ára krakka. Strákar og stelpur eru jafnvelkomin. Í fyrri vikunni (11-15 júní) verður farið yfir öll helstu undirstöðuatriði körfuboltans. Á morgnana er eftirfarandi æft: 1. Skot 2. Vörn 3. Sóknarhreyfingar 4. Knattrak Eftir hádegi er mikið af leikjum og alls konar fjör. Seinni vikan (18-22 júní) verður eins konar hátíðardagskrá á hverjum degi. Á morgnana verða æfingabúðir en eftir hádegi verða sérstakir viðburðir: Mánudagur: Hæfileikakeppnir (Skills competitions) Þriðjudagur: Skotkeppni (Shooting contests) Miðvikudagur: Mót 3 á 3 (3 og 3 Tournament) Fimmtudagur: Áskorendakeppni 1 á 1 (1 on 1 challenge) Föstudagur: Stjörnuleikur (All-Star game) Mikilvægar upplýsingar um körfuboltabúðirnar: • Frá kl. 9-15 í Austurbergi vikurnar 11-15 og 18-22 júní • Fyrir krakka fædda 1996-1999 • Fyrir unglinga fædda 1992-1995 • Hver dagur kostar 2.000 kr. nema keypt sé heil vika, þá 8.500 kr. Nánari upplýsingar má sjá á [v+]http://www.vassellbasketballcamps.myevent.com/[v-]heimasíðu körfuboltabúða Keith Vassell[slod-]. Skráning fer fram á heimsíðu ÍR og á heimasíðu körfuboltabúðanna.