26 maí 2007Í vikunni var dregið í töfluröð í Iceland Express deildunum og 1. deild karla. Töfluröðin ákvarðar hvaða lið mætast í hverri umferð. Í Iceland Express deild kvenna verður leikið með nýju fyrirkomulagi. Á ársþingi KKÍ var samþykkt að fjölga liðum í efstu deild kvenna úr 6 í 8. Það þýðir að tvö efstu liðin í 2. deild unnu sig upp í Iceland Express deildina og að ekkert lið féll úr Iceland Express deildinni. Breiðablik sleppur því við fallið og Fjölnir og KR munu leika í Iceland Express deild kvenna á næsta tímabili. Leikin verður tvöföld umferð til þess að byrja með en eftir það mun deildinni verða skipt í tvo riðla þar sem að fjögur efstu liðin leika innbyrðis og fjögur neðstu liðin leika sín á milli. Síðan verður leikin 6 liða úrslitakeppni næsta vor. Töfluröðin í Iceland Express deild kvenna ákvarðar því leikjaniðurröðun fyrri umferða deildarinnar. Töfluröðin í Iceland Express deild kvenna 1 ÍS 2 Haukar 3 Fjölnir 4 Breiðablik 5 Hamar 6 Keflavík 7 KR 8 UMFG Í fyrstu umferð deildarinnar munu því verða eftirfarandi leikir: Fjölnir - Keflavík Haukar - KR ÍS - UMFG Breiðablik - Hamar Breiðablik mun því fá tækifæri til þess að leika gegn Hamri strax í fyrstu umferð en liðin mættust í lokaumferð síðasta tímabils. Þá sigraði Hamar, fyrir framan stóran hóp áhorfenda, í leik sem að þá var hreinn úrslitaleikur í fallbaráttu deildarinnar.