25 maí 2007Í vikunni var dregið í töfluröð í Iceland Express deildunum og 1. deild karla. Töfluröðin ákvarðar hvaða lið mætast í hverri umferð. Nýliðarnir í Iceland Express deild karla, Þór Akureyri og Stjarnan, fengu heimaleiki í fyrstu umferð. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, dró í töfluröðina. Hér fyrir neðan má sjá í hvaða röð liðin í Iceland Express deild karla komu upp úr skálinni. 1 Þór Ak 2 UMFN 3 Keflavík 4 KR 5 Stjarnan 6 Hamar 7 Tindastóll 8 Skallagrímur 9 Fjölnir 10 UMFG 11 Snæfell 12 ÍR Í fyrstu umferð deildarinnar munu því verða eftirfarandi leikir: Stjarnan - Skallagrímur Hamar - Tindastóll Þór Ak. - ÍR Keflavík - UMFG KR - Fjölnir UMFN - Snæfell