25 maí 2007Í vikunni var dregið í töfluröð í Iceland Express deildunum og 1. deild karla. Töfluröðin ákvarðar hvaða lið mætast í hverri umferð. Í fyrstu deild karla verða nokkrar áhugaverðar viðureignir strax í fyrstu umferð. Töfluröðin í 1. deild karla: 1 Höttur 2 Reynir S. 3 Haukar 4 Þór Þ. 5 Ármann/Þróttur 6 KFÍ 7 FSu 8 Valur 9 Breiðablik 10 Þróttur V. Í fyrstu umferð deildarinnar munu því verða eftirfarandi leikir: Höttur - Þróttur V. Haukar - Valur Árm/Þrótt - KFÍ Reynir S. - Breiðablik Þór Þorl. - FSu Það verður spennandi að sjá hvernig 1. deildin verður á næsta tímabili en mörg liðanna þar munu leggja áherslu á að vinna sig upp í Iceland Express deildina.