24 maí 2007Úrvalsbúðir KKÍ fyrir efnilega krakka fædda 1994, 1995 og 1996 verða haldnar 9.-10 júní næstkomandi. Benedikt Guðmundsson mun verða þjálfari hjá drengjunum. Æfingar drengjanna verða í Seljaskóla í Breiðholti. Dagskráin í Seljaskóla: Strákar fæddir 1994 09.00 – 11.00 Strákar fæddir 1995 11.30 – 13.30 Strákar fæddir 1996 14.30 – 16.30 Yngvi Gunnlaugsson og Ágúst Björgvinsson munu stjórna búðunum hjá stúlkunum. Æfingabúðirnar verða að Ásvöllum í Hafnarfirði í júní. Dagskráin að Ásvöllum: Stúlkur fæddar 1994 09.00 – 11.00 Stúlkur fæddar 1995 11.30 – 13.30 Stúlkur fæddar 1996 14.30 – 16.30 Á næstunni verða send út bréf til þeirra krakka sem að tilnefndir voru í úrvalsbúðirnar. Það eru gríðarlega margir skráðir í ár og greinilegt að við eigum mikið af efnilegum krökkum.