23 maí 2007Laugardaginn 2. júní 2007 er fyrirhugað að halda körfuknattleiksmót í Grindavík fyrir stúlkur í 7.flokki kvenna. Tilefnið er hátíð á svæðinu er nefnist Sjóarinn síkáti sem gengur út á að halda sjómannadaginn hátíðlegan. Á svæðinu verða hinar ýmsu uppákomur og skemmtanir sem börnin og fullorðnir geta tekið þátt í. Mótið verður spilað frá kl. 10:00 um morguninn og fram eftir degi. Þegar hafa fjögur lið skráð sig í mótið. Nú er tímabilið á enda og er þetta kjörið tækifæri til að enda tímabilið með stæl, vonandi koma sem flest lið. Þátttökugjald 2000kr. á hvert lið og verða verðlaun fyrir fyrsta sæti mótsins. Þeir sem ætla að taka þátt vinsamlegast hafið samband við Ellert Sig. Magnússon í síma: 426-7036 eða 822-3100. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [p+]elli@grindavik.is[p-]elli@grindavik.is[slod-].