23 maí 2007Jón Arnór fór illa með fyrrum félaga sína í Napoli en Roma tók sig til og sópaði Napoli út úr 8-liða úrslitum. Jón lék mjög vel í leik 3 sem fram fór í gær og skoraði hann 12 stig á þeim 20 mínútum sem hann lék. Roma vann öruggan sigur [v+]http://195.56.77.208/game/?id=62925[v-]83:58[slod-] og þar með seríuna 3-0 Með sigrinum eru Rómverjar komnir í undanúrslit og mæta þar efsta liðinu Montepaschi Siena. Í liði Siena er m.a. leikmaður landsliðs Georgiu sem kemur hingað til lands í haust. Sá heitir Vladimer Boisa.