19 maí 2007Sextán ára lið kvenna vann sinn fyrsta sigur á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð þegar liðið skellti Norðmönnum með 18 stigum, 59-41. Íslensku stelpurnar fögnuðu sigrum vel enda allar að vinna sinn fyrsta landsleik. Íslenska liðið spilar því um bronsið við Dani á morgun. Íslenska liðið byrjaði af miklu krafti, komst í 9-0, 15-9 og var 19-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Guðbjörg Sverrisdóttir byrjaði leikinn frábærlega og var með 10 stig í þessum fyrsta leikhluta. Baráttan og leikgleðin var í fyrirrúmi og íslensku stelpurnar tóku meðal annars 18 fráköst fyrstu tíu mínútur leiksins. Íslensku stelpurnar héldu frumkvæðinu út hálfleikinn og voru 31-23 yfir í hálfleik. Norðmenn bitu aðeins frá sér í þriðja leikhluta og náðu að koma muninum niður í tvö stig, 35-33, þegar tæpar 5 mínútur voru eftir. Tvær körfur frá Þorbjörgu Friðriksdóttur og ein frá Lóu Dís Másdóttur og allar eftir glæsilegar stoðsendingar frá Heiðrúnu Kristmundsdóttur, komu muninum aftur upp í átta stig, 41-33, fyrir lok þriðja leikhluta. Salbjörg Sævarsdóttir gerði síðan út um leikinn í fjórða leikhlutanum með því að skora sjö stig í röð í upphafi fjórða leikhlutans og koma íslenska liðinu 13 stigum yfir, 48-35. Þrátt fyrir smá svar frá Norðmönnum var sigur íslensku stelpnanna aldrei í hættu eftir það en glæsileg þriggja stiga karfa frá Elmu Jóhannsdóttur gulltryggði á endanum sannfærandi sigur. Það eiga margar í íslenska liðinu hrós skilið fyrir góðan leik, Guðbjörg Sverrisdóttir var mjög góð með 22 stig, 10 fráköst og 6 stolna bolta og fyrirliðinn Lóa Dís Másdóttir fór fyrir sínu liði í fórnfýsi og baráttu og endaði með 12 stig og 16 fráköst. Salbjörg Sævarsdóttir átti frábæran endasprett, Þorbjörg Friðriksdóttir og Elma Jóhannsdóttir skoruðu mikilvægar körfur og þá var Heiðrún Krismundsdóttir með 9 fráköst og 8 stoðsendingar. 16 ára stelpur: Ísland-Noregur 59-41 Stigaskorið: Guðbjörg Sverrisdóttir 22 stig (10 fráköst, 6 stolnir) Lóa Dís Másdóttir 12 (16 fráköst, 4 stolnir, 3 varin) Salbjörg Sævarsdóttir 8 (10 fráköst) Þorbjörg Friðriksdóttir 6 Elma Jóhannsdóttir 5 (7 fráköst, 2 varin) Heiðrún Kristmundsdóttir 3 (9 fráköst, 8 stoðsendingar, 2 varin) Heiðrún Hödd Jónsdóttir 3