18 maí 200718 ára landslið kvenna tapaði með 25 stigum, 76-51, á móti Dönum í morgun þar sem íslensku stelpurnar áttiu slæman seinni hálfleik eftir að hafa byrjað leikinn mjög vel. Íslenska liðið komst í 11-3 og 16-6 og var 16-10 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Í hálfleik var síðan jafnt 29-29. Stelpurnar byrjaði seinni hálfleikinn ágætlega en í stöðunni 40-39 þegar 4 mínútur voru efir að 3. leikhluta fór allt að ganga á afturfótunum. Dönsku stelpurnar skoruðu 10 stig í röð og voru því næst komnar ellefu stigum yfir, 46-57, fyrir lokaleikhlutann þar sem þær juku síðan muninn upp í 25 stig. Ingibjörg Jakobsdóttir skoraði glæsilega þriggja stiga körfu á lokasekúndum fyrri hálfleiks og hefði þá átt að koma Íslandi í 32-29 en dómarar leiksins ákváðu að íslenska liðið þyrfti að endurtaka sóknina og dæmdu þessa körfu af. Íslensku stelpurnar sem voru þá komnar inn í búningsklefa en þurftu að mæta aftur á völl og spila aftur þessa tæpu sekúndu sem var eftir. Í stað þess að innkastið væri undir körfu Dana var búið að færa það aftur fyrir miðju og íslensku stelpurnar áttu því enga möguleika á að skora. Eftir góða leiki gegn Svíum og Finnum þá áttu stelpurnar ekki sinn besta dag gegn Dönum. Þær geta hinsvegar bætt fyrir það því með sigri á Norðmönnum á morgun, fá þær tækifæri til að hefna fyrir tapið. Sigur á Norðmönnum tryggir sæti í leiknum um 3. sætið sem verður að öllum líkindum á móti Dönum. 18 ára stelpur: Ísland-Danmörk 51-76 Stigaskorið: Unnur Tara Jónsdóttir 11 (5 fráköst, 4 stolnir) Ingibjörg Jakobsdóttir 9 Kristín Fjóla Reynisdóttir 6 (6 fráköst) Klara Guðmundsdóttir 5 (2 stolnir, 2 stoðsendingar, 11 mín.) Lilja Ósk Sigmarsdóttir 4 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 4 (2 stolnir, 2 stoðsendingar) Hafrún Hálfdánardóttir 3 Margrét Kara Sturludóttir 3 Íris Sverrisdóttir 2 (4 stoðsendingar, 2 stolnir) Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2 Berglind Anna Magnúsdóttir 2