17 maí 2007Það verður nóg að gera hjá 16 ára strákunum og 18 ára stelpunum á Norðurlandamótinu í Solna í dag því bæði lið spila tvo leiki á sínum fyrsta keppnisdegi. 16 ára strákarnir unnu flottan 43 stiga sigur á Norðmönnum í fyrri leik sínum áðan og á sama tíma spiluðu 18 ára stelpurnar góðan leik á móti heimastúlkum í Svíþjóð en urðu á endanum að sætta sig við 14 stig tap, 49-63. 16 ára strákarnir léku mjög vel í sínum fyrsta leik og unnu mjög öruggan 43 stiga sigur, 98-55, á Norðmönnum. Það var ljóst strax frá byrjun að íslensku strákarnir voru tilbúnir í fyrsta landsleik 1991-árgangsins. Liðið skoraði 32 stig og tók 22 fráköst í fyrsta leikhlutanum og var komið í 32-13 eftir 10 mínútur. Íslenska liðið hélt síðan mjög góðum tökum á leiknum, Benedikt Guðmundsson þjálfari leyfði öllum að spila og allir nema einn komust á blað. Ísland var 62-33 yfir í hálfleik og með 43 stiga forustu, 84-41, fyrir lokaleikhlutann. Aðeins tveir leikmenn liðsins höfðu leikið landsleik áður og því var gaman að fylgjast með strákurnum ná svona fljótt úr sér skrekknum og spila svona vel í sínum fyrsta landsleik. Þorgrímur Björnsson var mjög góður með 14 stig og 16 fráköst og fyrirliðinn Ægir Þór Steinarsson var nálægt þrefaldri tvennu með 13 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst á þeim 22 mínútum sem hann spilaði. Tómas Tómasson, Arnþór Guðmundsson og Haukur Óskarsson áttu allir líka mjög góða spretti í leiknum. Strákarnir spila á móti Svíum seinna í dag og þar verða öflugri andstæðingar á ferðinni. Íslenska liðið leyfði sér að tapa 34 boltum til Norðmanna í leiknum í dag og Benedikt hefur örugglega talað um það að þeir verða passa boltann betur gegn heimamönnum í kvöld en Svíar unnu Finna 74-66 í fyrsta leik sínum í gær. 16 ára strákar: Ísland-Noregur 98-45 Stigaskorið: Þorgrímur Björnsson 14 stig (16 fráköst, 3 varin, 3 stolnir) Ægir Þór Steinarsson 13 (8 stoðsendingar, 7 fráköst, 3 stolnir) Tómas Tómasson 13 (hitti úr 6 af 7 skotum, 3 stolnir, 3 stoðs., 13 mín.) Arnþór Guðmundsson 11 (6 stoðsendingar) Haukur Óskarsson 11 (11 mín., hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum) Haukur Helgi Pálsson 10 (6 fráköst) Trausti Eiríksson 8 (9 fráköst) Daði Berg Grétarsson 7 (3 stoðsendingar) Arnar Pétursson 5 Egill Egilsson 3 (5 fráköst, 3 stolnir, 11 mín.) Ívar Hákonarson 3 Stelpurnar í 18 ára landsliðinu stóðu vel í heimastúlkum í sínum fyrsta leik en urðu að sætta sig við 14 stiga tap, 49-63, eftir að hafa misst þær sænsku frá sér í lokin. Sænska liðið var með frumkvæðið allan leikinn en íslenska liðið gaf ekkert eftir, kom muninum niður í 3 stig, 36-39, þegar 15 mínútur voru eftir og hélt í við sænsku stöllur sínar alveg fram í fjórða leikhluta. Sænska liðið var 44-39 yfir fyrir lokaleikhlutann en vann hann 29-10 og þar með leikinn með fyrrnefndum 14 stigum. Þegar liðin mættust síðast fyrir tveimur árum í 16 ára liðinu þá unnu þær sænsku með 40 stigum (39-79) þannig að íslensku stelpurnar hafa bætt sig mikið á þessum 24 mánuðum. Ágúst Björgvinsson þjálfari íslenska liðsins var duglegur að skipta inn á enda með jafnt lið og margar stelpur sem geta látið til sín taka inn á vellinum. Það verður spennandi að sjá hvernig gengur hjá þeim í kvöld þegar þær spila við Finna en Finnar unnu þær með 39 stigum, 38-77, á þessu móti fyrir tveimur árum. 18 ára stelpur: Ísland-Svíþjóð 49-63 Stigaskorið: Unnur Tara Jónsdóttir 9 stig (4 stoðsendingar, 3 fráköst, 3 stolnir) Íris Sverrisdóttir 9 (4 fráköst) Ingibjörg Jakobsdóttir 8 Jóhanna Björk Sveinsdóttir 5 Margrét Kara Sturludóttir 4 Klara Guðmundsdóttir 4 Hafrún Hálfdánaradóttir 3 (4 fráköst) Lilja Ósk Sigmarsdóttir 2 María Lind Sigurðardóttir 2 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 2 Berglind Anna Magnúsdóttir 1